Endurvinnslustöðin í Vogum
Endurvinnslustöðin í Vogum er staðsett að Jónsvör 9.
Opnunartímar endurvinnslustöðvarinnar er sem hér segir:
Þriðjudagur/Fimmtudag/Föstudagur: 17.00 - 19.00
Sunnudagur: 12.00 - 16.00
Sími: 421-8014
Góð flokkun er undirstaða hagkvæmrar endurvinnslu en aðskotahlutir í úrgangnum sem safnað er eyðileggur hráefnið, verðfellir það á erlendum mörkuðum og getur valdið skemmdum á tækjabúnaði. Því er mikilvægt að flokka vel og flokka rétt!
Forflokkun áður en komið er inn á endurvinnslustöðina styttir viðdvöl á stöðinni, auðveldar losun og hindrar biðraðir. Fara skal með hvern flokk forflokkaðs úrgangs í sérmerktan gám/ílát þegar komið er inn á stöðvarnar. Ef eitthvað er óljóst skal fólk leita ráða hjá starfsmanni endurvinnslustöðvarinnar sem er því innan handar um flokkun úrgangs og staðsetningu íláta.