Aukið eftirlit á gámaplönum SS

28.9.2011

Dreifibréf hefur verið sent til allra fyrirtækja og stofnana á Suðurnesjum þar sem vakin er athygli á samþykktum um meðferð úrgangs frá rekstraraðilum. Áréttað er að gámaplön í Vogum, Grindavík og hjá Kölku í Helguvík eru aðeins ætluð til móttöku á heimilisúrgangi frá íbúum á Suðurnesjum. Aukið eftirlit er nú með því að reglum um þessi mál verði framfylgt. Sjá dreifibréfið í heild sinni hér.

Til baka