Breytingar á söfnun dagblaða, ferna og slétts pappa
18.10.2010
Breytingar hafa verið gerða á söfnun dagblaða, ferna og slétts pappa á þann veg að nú má setja þessa úrgangsflokka í sama gáminn.
Í þennan flokk falla öll dagblöð, tímarit, auglýsingapóstur, prentpappír, hreinar og tómar umbúðir úr sléttum pappa, fernur, morgunkornspakkar, eggjabakkar og pakkningar utan af matvælum s.s kexi og pasta.
Svo ekki komi ólykt við geymslu skal skola fernurnar vel áður en þeim er skilað.
Mikilvægt er að fjarlægja allar matarleifar eða plastumbúðir sem kunna að leynast í pappaumbúðum. Losið því blöðin úr plastpokum eða öðrum umbúðum og setjið þau í lausu í gáminn. Pressið umbúðirnar vel saman. Hefti og smærri gormar eru óskaðleg við endurvinnslu.
Ekki má setja þykkan kartonpappír sem er mikið ámálaður (skólar og leikskólar) né harðspjaldabækur. Aðskotahlutir rýra endurvinnslugildi pappírsins.