393. fundur stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja sf. haldinn fimmtudaginn 20.5.2010 í Kölku kl. 17.00.
Mætt eru: Hörður Guðbrandsson, Guðný E. Aðalsteinsdóttir, Hólmfríður Skarphéðinsdóttir, Margrét Sæmundsdóttir, Stefán B. Ólafsson, Berglind Kristinsdóttir starfandi framkvæmdastjóri, Gísli R. Eiríksson stöðvarstjóri og Aron Jóhannsson umhverfisfulltrúi. Særún Ástþórsdóttir og Inga Rut Hlöðversdóttir boðuðu forföll. Bergur Álfþórsson tók sæti Ingu Rutar á fundi. Ásbjörn Jónsson lögmaður sat fund undir lið 1.
1. Framtíð Kölku. Ásbjörn Jónsson kynnti stöðu mála vegna söluferils Kölku. Samningaviðræður við Waste Energy Management ehf. um kaup á Kölku hafa ekki borið árangur. Fyrirhuguð hlutafélagsvæðing rædd en ekki hefur náðst samkomulag um hluthafasamkomulagið.
2. Bréf dags. 30.04.2010 frá Umhverfisstofnun, reglubundið mengunareftirlit. Umhverfisfulltrúi kynnti efni bréfs. Umhverfisfulltrúa falið að vinna að athugasemdum sem fram komu í bréfi Umhverfisstofnunar.
3. Kostnaður við eyðingu á flugösku. Umhverfisfulltrúi kynnti kostnaðaráætlun á förgun flugösku til Noregs. Umhverfisfulltrúa falið að vinna áfram að framtíðarlausnum varðandi eyðingu á flugösku.
4. Önnur mál. Næsti stjórnarfundur ákveðinn 24. júní. Stjórn S.S. ákveður að ljúka tilraunaverkefninu Kompunni í júní.
Fundi slitið 18.35 .
___________________________
Hörður Guðbrandsson
_____________________ ________________________
Guðný E. Aðalsteinsdóttir Hólmfríður Skarphéðinsdóttir
_____________________ ____________________
Margrét Sæmundsdóttir Stefán B. Ólafsson
_____________________ ____________________
Bergur Álfþórsson Berglind Kristinsdóttir
_____________________
Gísli R. Eiríksson