Stjórn SS - fundur 394

25.6.2010

394. fundur stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja sf. haldinn fimmtudaginn 24.6.2010 í Kölku kl. 17.00.

Mætt eru: Hörður Guðbrandsson, Guðný E. Aðalsteinsdóttir, Hólmfríður Skarphéðinsdóttir, Stefán B. Ólafsson, Særún Ástþórsdóttir, Inga Rut Hlöðversdóttir, Berglind Kristinsdóttir starfandi framkvæmdastjóri, Gísli R. Eiríksson stöðvarstjóri og Aron Jóhannsson umhverfisfulltrúi. Margrét Sæmundsdóttir boðaði forföll.

 

1.      Bréf dags. 11.06.2010 frá Umhverfisstofnun, svar við bréfi varðandi eftirlitsskýrslu Kölku. Kynnt og lagt fram.

2.      Bréf dags. 28.05.2010 frá Sandgerðisbæ, varðandi flugösku. Kynnt og lagt fram.

3.      Bréf dags. 28.05.2010 frá Sandgerðisbæ, varðandi úrsögn Reykjanesbæjar. Kynnt og lagt fram. Sandgerðisbær staðfestir ósk Reykjanesbæjar um frestun úrsagnar.

4.      Bréf dags. 21.05.2010 frá Reykjanesbæ, varðandi úrsögn úr Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf. Kynnt og lagt fram. Bæjaráð Reykjanesbæjar samþykkir tillögu stjórnar S.S. um að fresta úrsögn Reykjanesbæjar um 6 mánuði.

5.      Önnur mál.

a.     Drög að sölusamningi Kölku við Waste Energy Management ehf. lögð fram og kynnt. Stjórn S.S. gefur Waste Energy Management ehf. 2 vikur til að uppfylla samninginn. Hafi svar ekki borist fyrir 9. júlí 2010 þá lítur stjórn S.S svo á að samningaviðræðum sé slitið. 

b.     Verðþróun brennslukostnaðar Kölku kynnt. Umhverfisfulltrúa og framkvæmdastjóra falið að vinna að tillögu fyrir aðalfund 2010 varðandi verðskrá Kölku.

c.      Stjórn S.S. ákveður að halda aðalfund 2010 þann 19.ágúst næstkomandi kl. 17.00 í Kölku.

 

 

Fundi slitið kl. 18.15.

 

Hörður Guðbrandsson (sign)

Guðný E. Aðalsteinsdóttir (sign)                                        
Hólmfríður Skarphéðinsdóttir (sign)
Stefán B. Ólafsson (sign)

Særún Ástþórsdóttir  (sign)                                                      
Inga Rut Hlöðversdóttir (sign)      

Berglind Kristinsdóttir (sign)                                                     
Gísli R. Eiríksson (sign)    

Til baka