404. fundur stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja sf. haldinn miðvikudaginn 30.03.2011 í fundarsal Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Iðavöllum 12b, kl. 17.00.
Mætt eru: Ríkharður Ibsen, Guðrún Arthúrsdóttir, Bergur Álfþórsson, Margrét Sæmundsdóttir, Páll Jóhann Pálsson, Einar Jón Pálsson, Kolbrún Pétursdóttir og Berglind Kristinsdóttir framkvæmdastjóri sem jafnframt ritaði fundargerð.
1. Skýrsla LS-finance.
Stjórnin ræddi skýrsluna. Ákveðið er að ráðast í breytingar á rekstrinum samkvæmt þeim tillögum sem koma fram í skýrslunni. Framkvæmdastjóra og formanni falið að fylgja eftir ákvörðun stjórnar.
2. Drög að starfslýsingu framkvæmdastjóra – LS-finance.
Stjórnin ræddi starfslýsinguna.
3. Kostnaðaráætlun v. ráðningar framkvæmdastjóra.
a. Tilboð frá Talent ráðningu.
b. Tilboð frá Intellecta.
c. Tilboð frá Hagvangi.
d. Tilboð frá Capacent.
Stjórn S.S. samþykkir að taka tilboði Intellecta. Framkvæmdastjóra og formanni falið að ganga frá samningi.
4. Önnur mál.
Tilboð frá Eiríki Jónssyni f.h Waste Energy Management. Tilboðið er óásættanlegt og stjórn S.S. hafnar því.
Stjórnin ákveður að Kölku verði lokað í fimm vikur í sumar eins og undanfarin tvö ár. Þetta er gert til að draga úr kostnaði við sumarafleysingar.
Fundi slitið kl. 19:12
Ríkharður Ibsen
Guðrún Arthúrsdóttir
Bergur Álfþórsson
Margrét Sæmundsdóttir
Kolbrún Pétursdóttir
Páll Jóhann Pálsson
Einar Jón Pálsson
Berglind Kristinsdóttir