Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2009-2020

10.12.2009

Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2009-2020 tekur til starfssvæðis fjögurra sorpsamlaga og 34 sveitarfélaga á suðvesturhluta landsins.

Áætlunin er niðurstaða samstarfsamnings sem gerður var 12. febrúar 2008 um endurskoðun sameiginlegrar svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs. Endurskoðuð svæðisáætlun ásamt umhverfisskýrslu var kynnt með auglýsingu 15. janúar 2009. Auk þess var stofnuð sérstök heimasíða www.samlausn.is þar sem áætlunin var aðgengileg almenningi. Lögbundnum athugasemdafresti lauk 1. mars 2009 og í áætluninni er gerð er grein fyrir þeim athugasemdum sem bárust ásamt viðbrögðum við þeim.

Verkefnisstjórn ítrekar að í aðgerðaráætluninni eru engar bindandi tímasetningar hvað varðar einstakar framkvæmdir. Ákvarðanir um framkvæmdaþátt áætlunarinnar verða teknar sérstaklega af samningsaðilum.

Á sameiginlegum fundi stjórna sorpsamlaganna 30. september 2008 var samþykkt að stofna til formlegs samstarfsvettvangs þar sem fulltrúar úr stjórnum samlaganna ættu sæti og fjallað yrði um sameiginleg mál svæðanna.

Svæðisáætlunin hefur verið samþykkt af stjórnum allra samlaganna og fengið staðfestingu sveitarstjórna allra þeirra sveitarfélaga sem að áætluninni standa.

Staðfesting viðkomandi sveitarstjórna á svæðisáætluninni felur í sér að sveitarfélögin hafa uppfyllt ákvæði laga um gerð svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs.

Skýrsluna má nálgast hér.

Til baka