Fara í efni

Grenndarstöðvar

 

Grenndarstöðvar  grenndargamar

 

Dagatal fyrir Grenndarstöðvarnar

 

Á eftirtöldum stöðum geta íbúar Suðurnesja skilað forflokkuðu endurvinnsluefni:

 

Reykjanesbær:

Geirdalur, Innri Njarðvík  

Áningastaður við fitjar                            

Afreksbraut

Hringbraut 108, Keflavík

Keilisbraut, Ásbrú


Suðurnesjabær:

Strandgata, Sandgerði 

Gerðavegur, Garður

 

Sveitarfélagið Vogar:

Hafnargata, Vogar

Hafnir

Seljavogur,Hafnir


Pappír og umbúðir úr sléttum pappa


Hvernig á að flokka?

Í þennan flokk má setja öll dagblöð, tímarit, auglýsingapóst, prentpappír, hreinar og tómar umbúðir úr sléttum pappa, fernur, morgunkornspakka, eggjabakka og pakkningar utan af matvælum s.s kexi og pasta. Svo ekki komi ólykt við geymslu skal skola fernurnar vel áður en þeim er skilað. Mikilvægt er að fjarlægja allar matarleifar eða plastumbúðir sem kunna að leynast í pappaumbúðum. Losið því blöðin úr plastpokum eða öðrum umbúðum og setjið þau í lausu í gáminn. Pressið umbúðirnar vel saman Hefti og smærri gormar eru óskaðleg við endurvinnslu.

Ekki má setja þykkan kartonpappír sem er mikið ámálaður (skólar og leikskólar) né harðspjaldabækur. Aðskotahlutir rýra endurvinnslugildi pappírsins.

 

Plast

Hvernig á að flokka?

Allar umbúðir úr plasti fara með plastinu nema þær séu hættumerktar, þá eru þær flokkaðar sem spilliefni. Umbúðirnar þurfa að vera tómar og hreinar til að henta til endurvinnslu

Það sem flokkast sem plast er t.d plastbakkar,plastpokar,plastbrúsar,plastlok,plastglös,skvísur,plastfilma,snakkpokar,túbur af snyrtivörum og fleira

Ekki setja Óhreinar umbúðir- Leikföng -Frauðplast- Raftæki -Geisladiskar og dvd diskar- Tannburstar- Lyfjaspjöld og Umbúðir undan spilliefnum

 

Málmar

Hvernig á að flokka?

Það sem má fara í málmflokkinn er meðal annars umbúðir úr málmum,álpappír,sprittkertabikarar,málmlok af krukkum og smærri hlutir úr málmi

Ekki setja óhreinar umbúðir-potta-pönnur-raftæki-Geisladiska og dvd diska-lyfjaspjöld og umbúðir undan spilliefnum

 

Gler

Hvernig á að flokka?

Efnið sem fer í glerflokkinn þarf að vera hreint og má setja í þann flokk t.d glerumbúðir,glerkrukkur ( takið lokið af),glerflöskur,ilmvatnsglös og fleira

Póstulín

Hvernig á að flokka?

Dæmi um slíkan úrgang

Efnið sem fer í póstulín flokkinn þarf að vera hreint og í þann flokk má t.d setja

Blómapotta,keramik.leirtau og fleira

 

Textíll

Hvernig á að flokka?

Dæmi um slíkan úrgang

Fatnaður,lín,lök,dúkar,tuskur,sloppar og handklæði

Kertavax

Kertastubbar, ónothæf kerti og vax. Athugið að sprittkertabikarar flokkast með málmi.

Rafhlöður

Einnota rafhlöður

Athugið að fjarlægja rafhlöður úr leikföngum (t.d. hnapparafhlöður)

 

Skilagjaldsskyldar umbúðir

Dósir og flöskur

 

 

Við bendum svo á að hægt er að koma á móttökuplön Kölku með annan úrgang sem ekki fellur til á Grenndarstöðvum eins og

Stór og lítil raftæki-húsgögn-hreint og ómálað timbur-spilliefni-málma-frauðplast-gas og slökkvikúta-ljósaperur

Hefur þú spurningu eða ábendingu varðandi efni vefsins?

Sendu okkur fyrirspurn