Fara í efni

Sagan

Um fyrirtækið

Reykjanesbær, Grindavíkurbær, Suðurnesjabær og Sveitarfélagið Vogar eiga og reka saman, sameignarfélag með ótakmarkaða ábyrgð undir nafninu Kalka sorpeyðingarstöð s.f. (Suðurnes Incinerator Authority). Heimili þess og varnarþing er í Reykjanesbæ. Tilgangur félagsins er að eiga og reka saman móttöku-flokkunar- og sorpbrennslustöðina Kölku í Helguvík. Enn fremur að annast þjónustu á sviði sorphirðu og móttöku úrgangs í sveitarfélögunum og önnur verkefni sem sveitarfélögin kunna að fela félaginu, á sviði úrgangs og endurvinnslumála.

Frá og með 1. apríl 2004 flutti starfsemi félagsins í nýja móttöku-flokkunar- og brennslustöð í Helguvík sem ber nafnið Kalka. Þar fer fram öll móttaka á sorpi frá sveitarfélögunum, íbúum og fyrirtækjum á starfssvæði stöðvarinnar samkvæmt gjaldskrá. Þar er einnig rekið gámasvæði fyrir almenning sem og í Grindavík og Vogum, þar sem íbúar svæðisins geta komið með úrgang frá heimilum til endurvinnslu og eyðingar.

Brennslustöðin Kalka er gefin upp fyrir að geta brennt allt að 12.300 tonnum úrgangs á ári og er með mjög fullkominn reykhreinsibúnað til að halda mengun frá stöðinni í algjöru lágmarki.

Annar úrgangur sem til fellur á Suðurnesjum er að hluta sendur í endurvinnslu og/eða til urðunar. Stefnt er að auknu endurvinnsluhlutfalli hér á Suðurnesjum.

Brennslustöðin er einnig útbúin til að eyða sóttmenguðum úrgangi sem og ýmsum flokkum spilliefna sem falla til hér á landi.

Þegar brennslustöðin Kalka var tekin í notkun árið 2004 ákvað þáverandi stjórn félagsins að vinna að nýrri ímynd stöðvarinnar m.a. með nýju nafni á hina nýju starfstöð og nýju merki félagsins. Nafnið vísar til vörðu sem nefndist Kalka og skipti löndum meðal 4 sveitarfélaganna á Suðurnesjum en er nú horfin undir flugbrautir á Keflavíkurflugvelli. Hún var hvít kölkuð á lit og var kennileiti af sjó. Hún mun einnig vísa okkur veginn inn í framtíðina á sviði umhverfismála. Merkið samanstendur af nokkrum uppbrotnum gulum hringjum sem eiga að tákna samfellda hringrás lífsins en guli liturinn stendur fyrir uppskeru þess að fara fara vel með náttúruleg auðævi.

Gamla stöðin við Hafnaveg sem var byggð árið 1979 og var á margan hátt fullkomin á sínum tíma og mikil bylting í sorpmálum Suðurnesjamanna en hefur lokið hlutverki sínu eftir tæplega 25 ára farsæla þjónustu. Brennslustöðin Kalka er ekki síður mikil bylting og færir Suðurnesjamenn í fremstu röð á sviði meðhöndlunar, endurvinnslu og förgunar úrgangs..

Hefur þú spurningu eða ábendingu varðandi efni vefsins?

Sendu okkur fyrirspurn