Viðgerðir á tunnum ,Útskipti á tunnum og nýjar tunnur.
Ein 240 l. grá tunna og ein 240 l. græn tunna fylgja hverju fasteignanúmeri íbúðarhúsnæðis. Fasteignareigandi greiðir aukalegt sorphirðugjald af hverri auka grárri tunnu. Það er innheimt af viðkomandi sveitarfélagi í gegnum fasteignagjöld. Óski fasteignareigandi eftir aukatunnu getur hann hringt í Kölku í síma 421-8010. Í sama númer skal hringja ef tunnan þarfnast viðhalds.
Einnig er hægt að panta þjónustu með forminu hér fyrir neðan.