Móttökustöð almennings í Helguvík og fyrirtækjamóttaka Kölku verða lokaðar til hádegis á morgun, fimmtudaginn 26 mars, vegna veðurs. Ef aðstæður leyfa munum við opna fyrr. Staðan verður endurmetin um hádegi.
en Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugular viðvaranir vegna suðaustan storms og stórhríðar á stórum hluta landsins í fyrramálið.
Við minnum á að opið er í dag í Helguvík til kl 18
Og hvetjum við almenning eindregið til að nýta þann opnunartíma ef losa þarf við eitthvað sem gæti valdið foktjóni
Einnig eru Íbúar eru hvattir til þess að huga að aðstæðum fyrir tunnur við sín heimili til að fyrirbyggja tjón og gera ráðstafanir þannig að auðvelt verði að koma tunnunum fyrir og tryggja að þær fari ekki á eitthvað flakk.
Við minnum á að íbúar eru ábyrgir fyrir að tunnum sé komið haganlega fyrir