Kalka sf. óskar að ráða verkefnastjóra til starfa til að leiða verkefni tengd sorpbrennslu og orkuvinnslu í Helguvík. Verkefnastjóri heyrir undir framkvæmdastjóra.
Miklar breytingar hafa orðið í úrgangsmálum sveitarfélaga og atvinnulífs á undanförnum árum og ekki sér fyrir endan á þeim. Með aukinni flokkun og endurvinnslu hafa úrgangsstraumar til brennslu breyst sem kallar á endurskoðun ferla í meðhöndlun úrgangs hjá Kölku. Þá er einnig unnið að undirbúningi nýtingar á varmaorku frá stöðinni og fjöldi annarra umbóta- og breytingaverkefna er í farvatninu. Hlutverk verkefnastjóra verður að tryggja góða vinnslu í breytingaverkefnum, sinna nauðsynlegri ferlahönnun, skjölun verklags og innleiðingu breytinga.
Við leitum að einstaklingi sem:
- Hefur áhuga á að sinna fjölbreyttum verkefnum í umhverfi í stöðugri mótun.
- Vill ganga til liðs við öflugt teymi á skemmtilegum vinnustað.
- Hefur ástríðu fyrir stöðugum umbótum og vill gera betur í dag en í gær.
Kröfur um menntun og hæfni:
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Góð almenn tölvufærni.
- Góð íslensku- og enskukunnátta.
- Stjórnunarreynsla.
- Reynsla af störfum í svipuðu umhverfi, t.d. stóriðu er mikill kostur.
- Reynsla af skipulagi viðhaldsverkefna og þekking á eldföstum efnum er kostur.
- Áhugi á umhverfismálum er skilyrði.
- Reynsla af ferlastjórnun og vottuðum gæða- og umhverfisstjórnkerfum er skilyrði.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Steinþór Þórðarson framkvæmdastjóri í síma 698 3490 eða með tölvupósti, steinthor@kalka.is. Umsóknarfrestur er til og með 15. September næstkomandi. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Umsókir skal senda Kölku Sorpeyðingarstöð, Berghólabraut 7, 230 Reykjanesbæ eða með tölvupósti á steinthor@kalka.is.
Kalka sf. er fyrirtæki í eigu sveitarfélaganna Reykjanesbæjar, Grindavíkurbæjar, Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga. Fyrirtækið annast sorphirðu og söfnun á endurvinnsluefnum á svæðinu, í samvinnu við verktaka, rekur móttökuplön í Helguvík, Grindavík (lokað sem stendur) og Vogum og sorpbrennslu í Helguvík. Hjá Kölku starfa að jafnaði rúmlega 20 manns. Kalka er aðili að undirbúningsfélagi fyrir nýja hátæknibrennslu á Íslandi og Samstarfsvettvangi sorpsamlaganna á SV horninu.
Meðhöndlun úrgangs frá heimilum og fyrirtækjum hefur breyst ört undanfarin ár og ljóst er að þróunin mun áfram verða hröð á komandi árum. Miklar breytingar hafa orðið í ytra umhverfi, með lögum og reglugerðum um úrgangsmál og væntingar eigenda og viðskiptavina Kölku um ábyrga meðhöndlun úrgangs breytast hratt. Verkefnin framundan eru því mörg og fjölbreytt.