05.10.2026
Kæru viðskiptavinir,
Nú eru framkvæmdir í fyrirtækja móttöku okkar hjá Kölku.
Móttakan verður áfram opin og starfsemin verður með eðlilegum hætti á meðan framkvæmdum stendur. Hins vegar má búast við tímabundinni röskun á umferð um móttökuna og mögulega örlítið lengri biðtíma á álagstímum.
Við leggjum okkur fram um að lágmarka áhrif framkvæmdanna og biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þær kunna að valda. Við þökkum kærlega fyrir þolinmæði og skilning á meðan unnið er að þessum mikilvægu úrbótum.