Sumarstarf 2026
Kalka sf. í Reykjanesbæ
óskar eftir að ráða til sumarafleysinga vélstjóra (vélstjórnarnema) eða
starfskraft með menntun/reynslu sem nýtist í brennslustöð fyrirtækisins.
Unnið er á vöktum allan sólarhringinn.Starfið felst m.a. í stjórnun á brennslulínu stöðvarinnar, viðhaldi og þrifum á vélbúnaði, tækjum o.fl.
Viðkomandi þarf að hafa góða tölvufærni, íslensku- og enskukunnáttu, hafa góða
samskiptahæfileika, geta unnið sjálfstætt og undir álagi, lyftarapróf er kostur.
Kalka er eina sorpbrennslustöðin sem starfrækt er hér á landi og þar starfa um 20 manns.
Upplýsingar veitir Ingþór Karlsson rekstrarstjóri brennslu í síma 862-3505
Umsóknir ásamt ferilskrá/kynningarbréfi sendist til ingtor@kalka.is fyrir 1. apríl 2026