Fara í efni

Aðalfundir

48. fundur 20. ágúst 2026 kl. 16:00 - 17:06 Park inn Hótel
Nefndarmenn
Fundargerð ritaði: Eva Rún Barðadóttir fundarritari

Aðalfundur Kölku sorpeyðingarstöðvar sf. nr. 48. var haldinn fimmtudaginn 20. ágúst 2026 kl. 16:00 á
Park Inn hótelinu í Reykjanesbæ


Dagskrá:
1. Fundarsetning
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
3. Skýrsla stjórnar, Önundur Jónasson, stjórnarformaður og Steinþór Þórðarsson,
framkvæmdastjóri.
4. Reikningar félagsins árið 2025, Kristján Þór Ragnarsson löggiltur endurskoðandi félagsins.
5. Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikning.
6. Tilnefning stjórnarmanna
7. Kosning endurskoðanda
8. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins
9. Tillaga um þóknun til stjórnarmanna
10. Önnur mál.


1. Fundarsetning
Önundur Jónasson, formaður stjórnar, setti fundinn kl. 16:10 og bauð fundarmenn velkomna.


2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
Önundur lagði til að Bergný Jóna Sævarsdóttir yrði kjörinn fundarstjóri og var það samþykkt samhljóða.
Bergný Jóna tók við fundarstjórn og lagði til að Eva Rún Barðadóttir stjórnarmaður Kölku yrði kjörinn
fundarritari og var það samþykkt samhljóða.
Bergný tilkynnti að mættir væru fulltrúar allra eignaraðila og að fundurinn hafi verið löglega boðaður.
Engar athugasemdir komu fram.


3. Skýrsla stjórnar, Önundur Jónasson, stjórnarformaður og Steinþór Þórðarson,
framkvæmdastjóri.
Önundur Jónasson, stjórnarformaður og Steinþór Þórðarson, framkvæmdastjóri fluttu skýrslu fyrir árið
2025.
Önundur bauð alla velkomna á 47. aðalfund Kölku flutti skýrslu stjórnar, fór yfir starfsárið og helstu
verkefni sem stjórn hefur unnað að sem og þróun félagsins á síðastliðnu kjörtímabili :


„Á síðastliðnu starfsári hefur verið unnið að fjölmörgum verkefnum til að styrkja innviði Kölku, bæta
þjónustu og skapa frekari tækifæri til endurnýtingar, endurvinnslu og orkunýtingar.


Veigamiklar breytingar voru gerðar á grenndarstöðvum á Suðurnesjum, bæði hvað varðar fyrirkomulag
og útlit. Með því markmiði að bæta ásýnd grenndarstöðva og auka hagkvæmni í rekstri. Gerður var nýr
samningur við Terra um þjónustu grenndarstöðva. Helsti munurinn felst í stærri gámum fyrir pappírs-
og plastefni, gámum fyrir fatnað og annan textíl sem hefur bæst við fyrri útfærslu og minni ílátum undir
málma og gler auk fleiri flokka móttökuefna.
Kalka tók við söfnun og rekstri móttökusvæðis fyrir garðaúrgang fyrir Reykjanesbæ. Móttökusvæðið er
staðsett rétt utan við móttökustöð Kölku í Helguvík. Verkefnið fellur vel að þeirri þróun sem orðið hefur
hjá félaginu, þar sem verkefnum tengdum móttöku, flokkun og ráðstöfun mismunandi efnisflokka hefur
fjölgað verulega.


Flugösku var skipað út og jafnframt rætt við norska samstarfsaðila um hugsanlegt samstarf um
meðhöndlun á menguðum jarðvegi. Slíkt samstarf gæti skapað nýjan farveg fyrir efni sem krefst
sérhæfðrar meðhöndlunar og hefur ekki átt sér farvegi hérlendis.


Móttaka á dýraleifum til brennslu hefur aukist nokkuð á árinu. Samskipti milli Matvælaráðuneytis og
Kölku um að Kalka geti tekið við enn meira magni af slíku efni. Þetta er í samræmi við sérstöðu Kölku
sem eina brennslustöð landsins og mikilvægt samfélagslegt hlutverk félagsins við örugga förgun efna
sem eiga fáa eða enga aðra farvegi. Þá hefur verið unnið markvisst að finna leiðir til að nýta orku frá
brennslunni. Verkfræðileg úttekt var framkvæmd á núverandi ferlum með því markmiði að fanga
glatvarma og útfæra tillögur um endurbætur til að hámarka nýtingu orku. Í byrjun árs 2026 var
viljayfirlýsing varðandi nýtingu varmaorku undirrituð af HS Veitum, HS Orku og Kölku.


Gjaldskrárbreytingar fyrir árið 2026, áhersla áfram lögð á að halda kostnaði í skefjum samhliða aukinni
þjónustu og nýta framlög Úrvinnslusjóðs eins vel og kostur er, gjaldskrárhækkanir því einungis
samkvæmt vísitölu. Sorphirðukostnaður heimila á Suðurnesjum er sá lægsti á landinu samkvæmt skýrslu
Viðskiptaráðs sem kom út í vor og samantekt frá Sambandi íslenskra sveitafélaga. Því getum við verið
stolt af því að sú vinna sem lögð hefur verið í að auka hagkvæmni skili þessum árangri og eigendur og
íbúar njóti góðs af árangrinum.


Í lok árs 2025 var gengið frá stofnun undirbúningsfélags nýrrar hátæknibrennslu sem er
samstarfsverkefni Kölku, Sorpu, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis og Sambands íslenskra
sveitarfélaga. Þátttaka Kölku er mikilvægur liður í að tryggja að þekking, reynsla og sérstaða Kölku
nýtist við mótun framtíðarlausna fyrir brennanlegan úrgang og orkuvinnslu hér á landi, auk þess sem
brennsla Kölku er mikilvægur hluti af heildar framtíðarlausn brennslu á Íslandi.
Í lok árs 2025 var húsnæði Kölku við Fitjabraut 10, Sódahöllin, selt og unnið hefur verið að undirbúning
við nýbyggingu á lóð Kölku í Helguvík. Nú standa yfir jarðvegsskipti undir húsnæðið sem er 1.440 m2
stálgrindarhús, mun byggingin verða reyst á komandi mánuðum. Óhætt er að segja að sú aðstöðubreyting
sem muni verða með byggingunni sé stærsta stökk sem átt hefur sér stað hjá Kölku síðan brennslan var
reyst. Húsnæðið mun gjörbreyta starfsaðstöðu, aðstöðu fyrir móttöku úrgangs, auk þess sem bætt
aðstaða mun koma til með að skapa svigrúm til aukinnar flokkunar, verðmætari endurvinnsluefni og
betri þjónustu við rekstraraðila. Þá mun hluti húsnæðisins hýsa geymslu undir sóda.


Ársreikningur félagsins er í samræmi við fjárhagsáætlun og afkoma umfram væntingar. Rekstur
félagsins stendur því traustum fótum samhliða því að ráðist hefur verið í umfangsmikil þróunar- og
fjárfestingarverkefni. Því er óhætt að segja að rekstur Kölku hafi gengið vel sem áður. Eiginfjárhlutfall
var 61% í lok árs 2024, hækkun á milli ára er 7% og var því 68% í lok árs 2025.
Fráfarandi stjórn Kölku hóf störf í ágúst 2022. Á tímabilinu hefur starfsemi Kölku tekið miklum
breytingum, bæði vegna nýrra krafna í úrgangsmálum, aukinnar flokkunar og breyttra efnisstrauma, en
einnig vegna verkefna sem miða að því að bæta þjónustu, nýta auðlindir betur og halda kostnaði í
skefjum.


Til að setja þróunina í samhengi er rétt að nefna að grenndarstöðvar voru opnaðar árið 2021 og fjögurra
flokka söfnun frá heimilum hófst árið 2024. Þessar breytingar hafa haft veruleg áhrif á þjónustu Kölku,
flokkun og efnisstrauma til brennslu og endurvinnslu. Flokkun er forsenda ábyrgrar ráðstöfunar. Með
betri flokkun plasts, pappírs, málma, glers, lífræns úrgangs og textíls hefur magn almenns brennsluefnis
frá heimilum minnkað verulega.
Um leið hefur aukist þörf fyrir að afla efnis, hakka og blanda öðru hentugu grunnefni til brennslu og
móttaka á spilliefnum, sóttmenguðu efni og öðrum sérhæfðum brennsluefnum aukist og orðið
mikilvægari þáttur í starfseminni.


Á tímabilinu hefur verið unnið markvisst að því að styrkja rekstur Kölku, bæta aðstöðu og verkferla,
auka gæði gagna og upplýsingagjafar og undirbúa starfsemina fyrir þær breytingar sem fram undan eru
í úrgangsmálum. Á sama tíma hefur verið lögð áhersla á að nýta mannauð og búnað sem best og leysa
verkefni heima eins og hægt er til að auka hagkvæmni og minnka umhverfisáhrif.


Aðstaða félagsins hefur tekið miklum breytingum. Móttökuplanið í Helguvík var stækkað árið 2022,
geymslu- og flokkunaraðstaða bætt og fleiri gámum komið fyrir. Lóð 7a var malbikuð og girt árið 2024,
þurrt rými á planinu stækkað árið 2025 og gámar keyptir í stað leigu.
Frauðplastpressa var tekin í gagnið árið 2025. Starfsmannaaðstaða bætt í Helguvík, Grindavík og
Vogum. Öryggismál hafa verið sett markvisst á dagskrá með atvikaskráningum, eftirfylgni
umbótaverkefna, fræðslu, notkun persónuhlífa og reglulegri yfirferð vinnusvæða.


Rekstur Kölku hefur tekið stakkaskiptum á undanförnum árum. Árið 2018 voru tekjur félagsins 652
milljónir króna en 1.721 milljón króna árið 2025. Eiginfjárhlutfall hækkaði á sama tíma úr 29,9% í 68%.
Auknar tekjur frá sveitarfélögum skýrast að mestu vegna aukinnar þjónustu, grenndarstöðvum og
fjögurra flokka söfnun, en aukin framlög Úrvinnslusjóðs hafa dregið úr þrýstingi á gjaldskrárhækkanir
til sveitafélaga. Þá hafa aðrar tekjur - t.d. vegna spilliefna og annarra erfiðra efna í brennslu aukist
samhliða og innvistun verkefna og hagkvæmar lausnir haldið aftur af kostnaðarhækkunum og tryggt
góðan rekstrarafgang.


Þróunin frá 2018 sýnir umfang þeirra breytinga sem orðið hafa. Endurvinnslutunnan markaði mikilvægt
skref árið 2018, grenndarstöðvar voru opnaðar árið 2021, á endurvinnsluplönum hefur efnisflokkum
fjölgað úr um 12 árið 2018 í um 40 í dag og á níu grenndarstöðvum á Suðurnesjum er nú tekið á móti
allt að níu efnisflokkum.


Mönnun hefur þrátt fyrir aukin og flóknari verkefni haldist nánast óbreytt frá 2018, eða á bilinu 19–21
stöðugildi. Áhersla hefur verið lögð á fræðslu, þjálfun, bætta móttöku nýliða, sveigjanleika og að breikka
þekkingargrunn starfsfólks. Starfsmannavelta hefur verið lítil og fjölbreytni í starfsmannahópnum
aukist.


Mikil framþróun hefur orðið í gagna- og kerfismálum. Fyrra vigtarferli byggðist að verulegu leyti á
handvirkri skráningu, 2019 - 2020 var innleitt vigtarkerfi, með því var stórbætt utanumhald efnisstrauma
og innleiddir áður óþekktir verkferlar. Sá grunnur er nú í endurhönnum og nýr vigtargrunnur í smíðum.
Betri gagnasöfnun, tengingar við viðskiptagreind og sjálfvirkari skýrslugerð hafa aukið öryggi í
viðskiptum, bætt ákvarðanatöku og sparað umtalsverða vinnu. Kalka er í dag í fremstu röð hvað varðar
söfnun og meðhöndlun áreiðanlegra gagna um úrgang.


Þegar litið er um öxl og yfir þetta tímabil hafa orðið miklar breytingar á rekstri og starfsemi Kölku og
forréttindi að hafa fengið að taka þátt í því.
Sérstaða Kölku felst áfram í brennslunni og getu til að meðhöndla ýmis efni sem erfitt eða ómögulegt
er að ráðstafa með öðrum hætti. Fram undan er áframhaldandi vinna við breytta efnisstrauma,
endurskoðun brennsluferla, reykhreinsun, hreinsun botnösku, ástandsskoðanir og áætlanir um
endurnýjun búnaðar. Samhliða felast mikil tækifæri í auknum heimtum endurvinnsluefna ásamt nýtingu
varma- og orku.


Áframhaldandi samstarf sorpsamlaganna á Suðvesturlandi er mikilvægt. Sorpa er áfram einn stærsti
samstarfsaðili Kölku og samráðsvettvangur samlaganna á Suðvesturhorninu mikilvægari en áður. Þá er
þátttaka Kölku í undirbúningsfélagi sorporkustöðvar mikilvæg fyrir framtíðar tilvist Kölku og
framtíðarskipan brennanlegs úrgangs á landsvísu.
Stjórn telur stöðu Kölku sterka þegar horft er til framtíðarkrafna um aukna endurnýtingu, endurvinnslu
og takmarkanir á urðun. Markmiðið er að íbúar á Suðurnesjum búi við úrgangskerfi sem einkennist af
ábyrgð, hagsýni og framsýni, að kostnaði sé haldið í skefjum og að fjárfest sé af skynsemi með áherslu
á arðsemi, góða þjónustu og umhverfislegan ávinning.
Stjórn telur að mikilvægur grunnur hafi verið lagður að áframhaldandi þróun Kölku. Verkefnin fram
undan eru mörg og krefjast áframhaldandi ábyrgðar, hagsýni, framsýni og góðs samstarfs við eigendur,
starfsfólk, viðskiptavini og samstarfsaðila.
Að lokum vil ég þakka framkvæmdastjóra og starfsfólki Kölku fyrir vel unnin störf, fagmennsku og
þann kraft sem lagður hefur verið í þróun félagsins og óska félaginu og nýrri stjórn velfarnaðar á
komandi árum.“


Steinþór Þórðarson tekur við orðinu og þakkar jákvæða endurgjöf formanns og ánægjulegt samstarf.
„Síðasta ár var ágætt ár hvað öryggismál varðar. Engin umtalsverð slys urðu á fólki og engin
tilkynningarskyld umhverfisatvik. Blásið var til sóknar og þónokkrum verkefnum með bætt öryggi að
markmiði var lokið á síðasta ári.


Samskipti við Umhverfisstofnun voru að venju góð og í kjölfar eftirlitsheimsóknar kom eitt frávik. Það
sáum við fyrir og kynntum strax umbótaáætlun sem var samþykkt.
Efnisstraumar til brennslu héldu áfram að taka verulegum breytingum frá fyrri árum. Almennur
heimilisúrgangur lítillega án þess að nálgast fyrri hæðir frá því fyrir sérsöfnun lífræns úrgangs. Ýmsir
aðrir straumar, t.d. dýraleifar og uppdælingarefni halda áfram að stækka. Heildarmagn úrgangs sem fór
í brennslu var vel yfir meðallagi síðustu fjögurra ára.
Eins og undanfarin ár var meira haft fyrir öflun heppilegs efnis til brennslu. Aukning í blautum efnum
kallar á eitthvað þurrt á móti. Þessi blöndunarlist lærist þó hratt ogþað er gaman að fylgjast með hvernig
vinnubrögðin aðlagast breyttum veruleika.
Sem fyrr er Sorpa okkur tryggasti bandamaður í að útvega okkur rétta efnið þegar upp á vantar. Okkar
aðlögun hér í Helguvík hefur þó dregið úr þörf fyrir slíka aðstoð og við náum stöðugt lengra í að nýta
til brennslu það sem til fellur hér suðurfrá og spara á móti í flutningum á höfuðborgarsvæðið.
Flokkurinn „frákeyrt til urðunar“ heldur áfram að minnka og var um 1.900 tonnum minni í fyrra en árið
á undan. Efni sem frákeyrt er í endurvinnslu eða endurnýtingu hefur á sama tíma aukist úr um 5.700
tonnum í tæp 8.000 tonn. Mjög stór skýring á minnkaðri urðun og aukinni endurvinnslu er
endurvinnslufarvegur sem hefur opnast fyrir timbur.
Heildarmagn efnis í alla meðhöndlunarflokka var rúmlega 21.100 tonn eða tæpum 600 tonnum meira
en árið á undan. Sú aukning er talsvert minni en milli áranna 23 og 24. Við erum þó alvön því að þetta
rokki eitthvað til.


Ég vék að því á þessum vettvangi í fyrra að við sem vinnum við þetta höfum þurft að venjast því að sjá
góða hluti gerast hægt. Stundum gerast þeir þó hratt eins og þegar farvegir opnast fyrir efnisstrauma í
endurvinnslu eða nýtingu. Við þurfum líka að læra að treysta því sem við upplifum á hverjum degi í
samskiptum við okkar viðskiptavini. Hugarfarsbreyting síðustu ára er kannski það áhugaverðasta sem
við upplifum í daglegu starfi. Fólk verður stöðugt áhugasamra um ábyrga meðhöndlun á sínum úrgangi
og lífseigar sögur um endurvinnsluefnin sem öll enda í sama haugnum verða stöðugt fáheyrðari.
Í fyrra var brennt í 344 sólarhringa en markmið Kölku er að brennsludagar séu ekki færri en 330 á ári.
Brennslan var stöðvuð tvisvar, í annað skiptið samkvæmt áætlun í skipulagt viðhald en hitt vegna
óvæntrar bilunar og þá í rétt rúman sólarhring. Skipulagt viðhald á stöðinni var umfangsmikið og í
samræmi við þá stefnu að halda henni í góðu standi.


Á síðasta ári var unnið að stofnun undirbúningsfélags fyrir nýja hátæknibrennslu á Íslandi en fyrsti
stjórnarfundur félagsins var svo haldinn 13. mars síðastliðinn. Félagið er í eigu Sorpu og Kölku en hefur
stuðning frá Umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytinu. Sá stuðningur kemur í formi samnings
ráðuneytisins við Samband íslenskra sveitarfélaga sem hefur áheyrnarfulltrúa í stjórn. Samningnum
fylgir fjármagn sem ásamt hlutafé Sorpu og Kölku á að duga til að félagið geti lokið ætlunarverki sínu.
Félaginu er ætlað að halda áfram með þann undirbúning sem Sorpa, Kalka o.fl. höfðu þegar unnið og
hófst að frumvæði Kölku strax á árinu 2020. Meðal helstu forgangsverkefna eru rýni á lagalegu umhverfi
svona fyrirtækis, endanleg tæknilýsing sem er forsenda umhverfismats og stefna og sýn á nýtingu orku
frá stöðinni. Lokatakmarkið er vandlega skilgreind sorporkustöð, lóð til byggingar, umhverfismat og
samvinna við orkufyrirtæki um orkunýtingu.


Eins og fyrirliggjandi gögn um rekstrargrundvöll fyrirtækis sem þessa bera með sér er það ekki
hagsmunamál sveitarfélaga að úrgangur landsmanna gangi í Evrópusambandið lengur en þarf.
Samhliða stofnun hins nýja félags hefur verið settur á laggirnar samráðshópur stjórnvalda um
hátæknibrennslustöð, undir forystu Umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytis með fulltrúm frá
Innviðaráðuneyti, Atvinnuvegaráðuneyti og Fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Megintilgangur hópsins
er að undirbúa flutningsjöfnunarkerfi fyrir brennsluefni og almennt styðja við undirbúning
hátæknibrennslustöðvar m.a. með breytingum á löggjöf ef við á.
Afkoma síðasta árs var vel viðunandi en endurskoðandi mun reifa það betur. Eins og á undanförnum
árum var hægt var að fjármagna viðhald og endurbætur með fjármunum frá rekstri, án nýrrar lántöku og
greitt var inn á höfuðstól lána. Mikið laust fé um áramót á sér skýringu í eignasölu án þess að hafist hafi
verið handa um að byggja nýtt hús til að leysa af hólmi það sem selt var. Nú standa þær framvæmdir
sem hæst og það fjármagn sem sat á reikningum um áramót streymir í þá fjárfestingu.
Gjaldskrárhækkanir síðustu ára hafa verið talsvert undir kostnaðarhækkunum á þeim liðum sem snerta
sveitarfélögin og reyndar að mestu bara heilt yfir. Við gerð síðustu áætlunar var gjaldskrá verðbætt fyrir
hluta verðbólgu. Við gerð áætlunar fyrir næsta ár, sem þegar er hafin, verður kappkostað að halda aftur
af hækkunum eins og kostur er. Framtíðarsýn okkar í Kölku er að gjöld muni lækka með áframhaldandi
umbótum í rekstri. Eignist íslendingar nýja sorporkustöð til að fylla það skarð sem nú birtist í útflutningi
á efni til brennslu á kostnaður heimila vegna meðhöndlunar úrgangs að geta nálgast það sem gerist á
hinum norðurlöndunum. Í dag er það bil töluvert stórt. Ef við byggjum ekki upp og höldum í staðinn
áfram að flytja út þá borgum við eina hátæknibrennslu á fjögurra til sex ára fresti en eignumst enga. Sú
spá er byggð á núverandi kostnaði við útflutning.


Í öllum vangaveltum um gjaldskrár og kostnað heimila og fyrirtækja verður sífellt mikilvægara að skoða
þátt Úrvinnslusjóðs. Í stefnu, þá Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins „Í átt að hringrásarhagkerfi“ frá
árinu 2021 segir um úrvinnslugjald sem lagt er á vörur að „gjaldinu er ætlað að standa undir þeim
kostnaði sem hlýst af meðhöndlun vörunnar þegar notkun hennar er lokið og hún hefur orðið að
úrgangi.“ Við höfum séð þessu kerfi vaxa smám saman fiskur um hrygg og á síðasta ári voru að koma
peningar til að létta íbúum róðurinn og það peningar sem munar töluvert um. Þetta fé kemur eftir tveimur
leiðum inn í virðiskeðjur úrgangs. Ráðstöfunaraðilar, og eftir atvikum flutningsaðilar, úrgangs fá
framlög fyrir ráðstöfun endurvinnsluefna og í flestum tilfellum flutning þeirra líka.
Þannig fá okkar samstarfsaðilar sem ráðstafa t.d. pappa frá okkur meðgjöf sem léttir. Söfnunarframlag
til sveitarfélaga kom inn þegar fjögurra flokka söfnun frá heimilum var fest í lög og það framlag höfum
við horft á stækka umtalsvert síðan.


Í heild komu því ríflega 171 milljón króna eftir þessum tveimur leiðum inn í virðiskeðjur úrgangs á
Suðurnesjum árið 2025, þar af rúmar 120 milljónir beint til sveitarfélaganna, skv. gögnum frá
Úrvinnslusjóði. Rétt er taka fram að hér eru aðeins teknar saman tölur vegna pappa, plastumbúða, málm-
og glerumbúða. Ótalin eru framlög vegna annarra efnisflokka sem bera úrvinnslugjald, t.d. rafhlöður,
raftæki, hjólbarðar, viðarumbúðir o.fl. Það er því augljóst að þessi stuðningur er að minnka þrýsting á
kostnaðarhækkanir.


Víkjum næst að úrgangsmálum í brennidepli fjölmiðla, stjórnmála og almennings. Við í Kölku fögnum
yfirleitt allri umfjöllun um úrgangsmál á opinberum vettvangi. Við viljum þó frekar að sú umræða sé
upplýst, hófstillt og sanngjörn. Á síðustu misserum hefur borið á umræðu um að þjónusta við íbúa vegna
úrgangs sé allt of dýr. Um þetta hefur verið fjallað og enginn greinarmunur hefur verið gerður á beinum
kostnaðarhækkunum og aukinni þjónustu. Enn síður hafa áhrif úrvinnsluframlaga verið vegin inn í
jöfnuna og ekki hefur verið tekið tillit til fortíðarvanda sem hefur víða verið til staðar en sér nú vonandi
fyrir endann á. Ályktanir hafa verið dregnar um stækkandi „bákn“, ranga nálgun við viðfangsefnið og
þar frameftir götum.
Eitt er það í þessu sem er alveg rétt. Þetta er allt of dýrt. Í samanburði við nágrannalönd er þessi þjónusta
dýr á Íslandi.


Langstærsta skýringin á háum kostnaði vegna úrgangs okkar Íslendinga er útflutningur á efni til brennslu
erlendis. Leiðin út úr því ástandi er að byggja upp innviði hér heima. Innlend brennsla á hæglega að geta
meðhöndlað efnið okkar fyrir þriðjung af því verði sem greitt er fyrir útflutninginn. Ekkert einstakt
tækifæri til að lækka kostnað heimila og fyrirtækja vegna úrgangs um viðlíka upphæðir blasir við í dag.
Hvað „báknið“ varðar vil ég rifja upp að starfsmannafjöldi Kölku hefur ekki vaxið á undanförnum árum
og launakostnaður hefur ekki rokið upp. Núna erum við aðeins að stækka hópinn. Sú fjölgun á sér
skýringar í aukinni þjónustu og auknum kröfum. Aukin umferð um t.d. planið í Helguvík hefur kallað á
fleira fólk. Fjölgun sorpíláta í umferð hefur kallað á meiri vinnu við að þjónusta þau. Kröfur um
gagnaskil, til yfirvalda og Úrvinnslusjóðs hafa kallað á aukna vinnu. Það er ekkert athugavert við að
fyrirtæki eins og Kalka vaxi með verkefnum sínum. Við höfum náð ótrúlega langt með hagræðingu og
betri nýtingu en nú er kominn tími til að taka út svolítinn vöxt.
Í skýrslu sem Viðskiptaráð gaf út í vor, um árlegan kostnað við sorphirðu í fjórflokkakerfinu á síðasta
ári ber Reykjanesbær lægsta kostnaðinn í samanburði sjö stærstu sveitarfélaga landsins. Forskotið er
nokkuð afgerandi. Ýmislegt má finna að aðferðafræðinni í þessum samanburði en að teknu tilliti til
augljósra veikleika stendur heildarmyndin þó nokkurn veginn hvað okkur snertir. Gögn frá Sambandi
íslenskra sveitarfélaga segja líka sömu sögu. Í samanburði landshluta eru sorphirðugjöld lægst á
Suðurnesjum.


Á bak við þá niðurstöðu er mikil vinna og gott samstarf sveitarfélaganna og Kölku. Við höfum leitast
við að fara skynsamlegar leiðir, að gera vel án þess að gullhúða. Ég leyfi mér að fullyrða að þjónustan
sé síst verri hér en í þeim sveitarfélögum sem heimta hærri gjöld. Við hér suðurfrá vitum líka að hér er
ekki verið að sækja fé í aðra sjóði innan sveitarfélaganna. Sorphirðugjöldin dekka kostnaðinn. Við vitum
ekki með vissu hvernig því er háttað annarsstaðar. Til skamms tíma voru sveitarfélögin á Suðurnesjum
þau einu sem bjuggu við þessa stöðu fyrir utan einn eða tvo hreppa úti á landi.
Við erum nokkra mánuði frá því að stórbæta aðstöðu til móttöku á úrgangi frá rekstraraðilum. Með þeirri
viðbót batnar líka til muna aðstaðan til að meðhöndla úrgang til brennslu. Allt styrkir þetta Kölku inn í
framtíðina sem traustan bakhjarl fólks og fyrirtækja á Suðurnesjum. Við höfum háleit markmið og náum
þeim með samvinnu.


Að lokum þetta: Ég hef minnst á fortíðarvanda sem hefur áhrif á kostnað vegna úrgangs þegar hann er
skoðaður á landsvísu. Ég hef líka talað um háan kostnað þeirra sem þurfa að kaupa flutning á sínum
úrgangi til Evrópu. Ég hef ekki tekið fram að þetta snertir okkur á Suðurnesjum afar lítið. Skuldir Kölku
eru viðráðanlegar og hafa verið það um árabil. Brennslugjaldskrá okkar er talsvert lægri en
útflutningsverðið sem aðrir þurfa að greiða og við viljum sjá hana lækka. Ef þessi samanburður
sveitarfélaga og landshluta sem ég vék að áðan tæki til förgunar eða annarrar ráðstöfunar en ekki bara
sorphirðu þá væri okkar forskot á aðra ennþá stærra. Með öðrum orðum þá erum við í góðum málum -
miðað við aðra. Nú er það okkar að tryggja að það verði þannig til framtíðar. Ekki vegna þess að við
viljum vinna einhverja keppni. Við viljum bara vinna þetta með ábyrgð og fagmennsku að leiðarljósi.
Svo einfalt er það!
Vinnum saman og höldum áfram á sömu braut!
Takk fyrir.“


4. Reikningar félagsins árið 2025, Kristján Ragnarsson löggiltur endurskoðandi félagsins.
Kristján Þór Ragnarsson löggiltur endurskoðandi hjá Deloitte kynnti ársreikning fyrirtækisins árið 2025.
Heildarrekstrartekjur námu um 1.720 mkr. en voru 1.370 mkr. árið 2024.


Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsgjöld (EBITDA) nam þannig tæplega 434 mkr. en var
tæplega 246 mkr. árið 2025. Heildarhagnaður ársins eftir afskriftir og fjármagnsgjöld nam rúmum 418
mkr. en var rúmar 203 mkr. árið 2024.
Meðal tekna árið 2025 er 248 mkr. söluhagnaður af vöruhúsnæðis á Fitjabraut þannig að hagnaður af
reglulegri starfsemi er 170 mkr. samanborið við 203 mkr. árið 2024.
Í árslok 2025 námu heildareignir félagsins 2.352 mkr. en skuldir og skuldbindingar námu 745 mkr.
Eigið fé er 1.607 mkr. og eiginfjárhlutfall félagsins er 68% samanborið við 61% í árslok 2025.


5. Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikning félagsins
Gólfið var opnað fyrir spurningum og upp bárust þrjár spurningar úr sal.
Fyrsta var „er möguleiki á auknum vexti í brennslunni eins og hún stendur í dag?“ Steinþór svaraði að
áhugi væri á að taka við meira af dýraleifum sem er á heldur hærra verði en efni frá heimilum. Ástæða
þess að hefur gengið vel með brennslu er að Kalka hefur náð að anna öllum þeim spilliefnum sem óskað
er eftir brennslu á. Það er aftur á móti alltaf verið að reyna afköstin í brennslunni og þar af leiðandi
afkomuna. Þrátt fyrir að uppselt sé í raun í brennsluna miðað við uppsett afköst sé ekkert sem segi að
það geti ekki aukist aðeins meira.“
Önnur spurning tengdist því að Kalka sé með lægsta sorðhirðugjaldið á Íslandi. „ Liggur í þessu tækifæri
að lækka kostnað til íbúa ennþá frekar?“ Steinþór svarar að alltaf sé nauðsynlegt að reikna raunkostnað
og má ekki nota hagnað af annarri þjónustu til að niðurgreiða kostnað vegna sveitarfélaganna. Það þarf
að lækka raunkostnaðinn. Steinþór telur að möguleiki sé á lækkun til almennings með almennum
umbótum í rekstri og stöðugt sé unnið að umbótum í Kölku.
Þriðja spurning var varðandi undirbúningsfélagið. „Það hefur verið stofnað, er tímarammi? Steinþór
svarar 2 ár frá stofnun eigi verkefni félagsins að vera lokið. Hefði vilja að klára þetta miklu fyrr. Útlit
að klárað sé á tíma þar sem góður gangur er á þessu. Ráðuneytin eru komin í gang og farin að sýna þessu
áhuga sem skiptir miklu máli.“
Ársreikningur Kölku sorpeyðingarstöðvar sf. fyrir árið 2025 var borinn upp og samþykktur samhljóða.


6. Tilnefning stjórnarmanna
Fundarstjóri tilkynnti að eftirfarandi hafi verið tilnefndir stjórnarmenn í Kölku sf. til næstu fjögurra ára
eða út núverandi kjörtímabil sveitarstjórna. Fyrir Reykjanesbæ; Sigurgeir Jóhannsson og Sigurrós
Antonsdóttir aðalmenn og Gunnlaugur Kárason og Guðný Birna Guðmundsdóttir til vara. Fyrir
Suðurnesjabæ; Önundur Björnsson og Sigurður Þór Magnússon til vara. Fyrir Grindavíkurbæ; Ásrún
Kristinsdóttir og Þorleifur Ólafsson til vara. Fyrir Sveitarfélagið Voga; Ingþór Guðmundsson og
Friðrik Valdimar Árnason til vara.


7. Kosning löggilts endurskoðanda
Tillaga er um að endurskoðunarfyrirtækið Deloitte verði endurskoðandi félagsins. Tillaga borin upp og
samþykkt samhljóða.


8. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins
Engar tillögur komu fram að þessu sinni um breytingar á samþykktum félagsins.


9. Tillaga um þóknun til stjórnarmanna
Lagt er til að formaður stjórnar fái 5% af þingfararkaupi fyrir hvern fund, en aðrir stjórnarmenn fái 4%
af þingfararkaupi fyrir hvern fund.
Tillagan borin upp og samþykkt samhljóða.


10. Önnur mál.
Fundarstjóri þakkaði stjórnendum og starfsmönnum Kölku fyrir góð störf fyrir félagið og
fundargestum fyrir góðan fund.


Fleira var ekki gert og var fundi slitið kl. 17:06.

Hefur þú spurningu eða ábendingu varðandi efni vefsins?

Sendu okkur fyrirspurn