Stjórnarfundir
Fundur í stjórn Kölku sf. haldinn þriðjudaginn 1. september 2026, kl. 16:30 í fundarsal Kölku í
Helguvík.
Mætt: Ingþór Guðmundsson, Sigurgeir Rúnar Jóhannsson, Sigurrós Antonsdóttir, Önundur S.
Björnsson, Steinþór Þórðarson og Ásrún Helga Kristinsdóttir sem ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. Stjórn skiptir með sér verkum. Kjör formanns, varaformanns og ritara.
2. Frágangur á undirskriftum á tilkynningu til skattsins vegna stjórnarskipta.
3. Skipulagsbreyting.
4. Gerð áætlunar fyrir 2027.
5. Skýrsla framkvæmdastjóra
6. Baksýnisspegill – þróun Kölku á síðustu árum.
7. Önnur mál.
1. Stjórn skiptir með sér verkum. Kjör formanns, varaformanns og ritara.
Sigurgeir Rúnar Jóhannsson, formaður.
Ingþór Guðmundsson, varaformaður.
Stjórn ræddi það hvort tilefni sé að fá starfsmann Kölku til að rita fundargerðir í því
tilliti að ritari einangrist ekki við fundargerðarskrif á stjórnarfundum og geti tekið
þátt í fundum. Framkvæmdastjóra falið að vinna málið áfram.
2. Frágangur á undirskriftum á tilkynningu til skattsins vegna stjórnarskipta.
3. Skipulagsbreyting.
Framkvæmdastjóri fór yfir fyrirhugaðar skipulagsbreytingar.
Samþykkt var að auglýsa stöðu verkefnastjóra sorpbrennslu og orkuframleiðslu.
4. Gerð áætlunar fyrir 2027.
Framkvæmdastjóri fór yfir áætlun fyrir árið 2027. Gert er ráð fyrir að stjórn fari yfir
tilbúna áætlun fyrir árið 2027 á októberfundi. Stjórn ber ábyrgð á áætlun og
mikilvægt að hún sé vel inn í öllum þeim verkefnum sem í henni eru.
5. Skýrsla framkvæmdastjóra
• Framkvæmdastjóri fór yfir öryggis og starfsmannamál, rekstur og viðhald
brennslunnar.
• Umræða um framtíðarsýn stjórnar og mögulega vettvangsferð til
orkufyrirtækja.
• Bygging á nýju flokkunar- og geymsluhúsi rædd, á næstu dögum verður hægt
að ganga frá samningi varðandi uppsteypu á sökkli og plötu.
• Nýjar grenndarstöðvar og tæmingar.
6. Baksýnisspegill – þróun Kölku á síðustu árum.
Framkvæmdastjóri fór yfir mikilvæg skref sem stigin hafa verið á síðustu árum.
Ánægjulegt að sjá jákvæða þróun og hvetjandi fyrir Kölku að halda áfram að gera vel
á hinum ýmsu sviðum.
7. Önnur mál.
Engin önnur mál rædd.
Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 18:45.
Næsti fundur er áætlaður þriðjudaginn 13. október 2026.
Fundargerð samþykkt með rafrænni undirritun