Fara í efni

Stjórnarfundir

582. fundur 03. nóvember 2026 kl. 16:30 - 17:40 Fundarsalur Kölku í Helguvík
Nefndarmenn
  • Ingþór Guðmundsson
  • Sigurgeir Rúnar Jóhannsson
  • Sigurrós Antonsdóttir
  • Önundur S. Björnsson
  • Ásrún Helga Kristinsdóttir
  • Steinþór Þórðarson
Starfsmenn
  • Halldór Eiríksson sem ritaði fundargerð.
Fundargerð ritaði: Halldór Eiríksson fjármálastjóri

Dagskrá:
1. Áætlun Kölku fyrir 2027 kynnt og lögð fram til samþykktar.
2. Gjaldskrár Kölku fyrir 2027.
3. Erindi frá Carbfix um tilraunaverkefni næsta vor.
4. Önnur mál.


1. Áætlun Kölku fyrir 2027 kynnt og lögð fram til samþykktar.
Gert er ráð fyrir að komandi rekstrarár verði áþekkt því sem nú er að líða þótt einhverjar sveiflur í
efnisstraumum, til brennslu eða annarrar meðhöndlunar séu í kortunum. Í ljósi
efnahagsástands megi gera ráð fyrir samdrætti í almennum straumum en annað efni geti að
hluta komið á móti.


Kostnaðarhlutdeild sveitarfélaga, vegna söfnunar og ráðstöfunar efnis hækkar ekki á milli ára. Á
móti fyrirsjáanlegum hækkunum reyndist unnt að draga úr kostnaði og skapar því gjaldskrá
Kölku ekki þrýsting á hækkun sorphirðugjalda um áramót.


Árið 2026 hefur verið mikið framkvæmdaár í Kölku og er gert ráð fyrir mun minna fé til viðhalds
og nýframkvæmda á næsta ári. Þó er gert ráð fyrir rúmlega 190 milljónum í viðhald og
nýframkvæmdir sem tengjast m.a. lokafrágangi framkvæmdaverkefna sem staðið hafa yfir á
þessu ári.


Framkvæmdastjóri og fjármálastjóri fóru yfir helstu liði í áætlun og hún var samþykkt samhljóða.


2. Gjaldskrár Kölku fyrir 2027.
Í ljósi efnahagsaðstæðna hefur allt kapp verið lagt á að halda aftur af gjaldskrárhækkunum við
gerð áætlunar fyrir næsta ár. Eins og fram hefur komið verður gjald fyrir almennt brennsluefni frá
heimilum óbreytt frá fyrra ári. Þá mun gjaldskrá fyrir almenning á móttökuplönum einnig standa í
stað milli ára.


Við aðrar breytingar er gert ráð fyrir að ekki sé hækkað umfram 2,5%. Í einhverjum tilvikum, til
viðbótar þeim sem áður er getið, standi verð í stað eða lækki jafnvel lítillega. Framkvæmdastjóri
óskaði eftir umboði stjórnar til að útfæra þessar breytingar og leggja fyrir næsta stjórnarfund ef
brugðið verður út af þeim meginreglum sem kynntar voru á fundinum. Tillagan var samþykkt
samhljóða.


Fyrir liggur að Kalka mun fá á sig hækkanir frá þjónustu- og samstarfsaðilum sem í sumum
tilvikum verða umfram 2,5%. Því hefur verið leitað leiða til að mæta þeim hækkunum með
öðrum hætti en að velta þeim áfram í gjaldskrár Kölku. Nýjar leiðir til afsetningar á efni, bæði í
endurvinnslu og förgun, eru stöðugt í skoðun sem og leiðir til að auka afköst og hagkvæmni.


3. Erindi frá Carbfix um tilraunaverkefni næsta vor.
Framkvæmdastjóri kynnti erindi frá Carbfix um áhuga fyrirtæksins á að gera tilraunir með
kolefnisföngun og niðurdælingu í samvinnu við Kölku á næsta ári. Stjórn telur málið vera mjög
áhugavert og felur framkvæmdastjóra að vinna það áfram með Carbfix.


3. Önnur mál.
Engin önnur mál rædd.


Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 17:40.
Næsti fundur er áætlaður þriðjudaginn 8. desember 2026.


Fundargerð samþykkt með rafrænni undirritun

Hefur þú spurningu eða ábendingu varðandi efni vefsins?

Sendu okkur fyrirspurn