Fara í efni

Stjórnarfundir

569. fundur 13. maí 2025 kl. 16:00 - 18:00 fundarsalur Pure North í Hveragerði
Nefndarmenn
  • Önundur Jónasson
  • Ingþór Guðmundsson
  • Kristín Ragnheiður Eiríksdóttir ( á Teams)
  • Svavar Grétarsson
  • Páll Orri Pálsson varamaður í fjarveru Eiðs Ævarssonar
  • Steinþór Þórðarson
Fundargerð ritaði: Steinþór Þórðarsson Framkvæmdarstjóri

Fundur í stjórn Kölku sorpeyðingarstöðvar sf. var haldinn þriðjudaginn 13. maí 2025 kl. 16:00 í
fundarsal Pure North í Hveragerði.


Mættir: Önundur Jónasson, Ingþór Guðmundsson, Kristín Ragnheiður Eiríksdóttir (á Teams), Svavar
Grétarsson, Páll Orri Pálsson varamaður í fjarveru Eiðs Ævarssonar og Steinþór Þórðarson sem ritaði
fundargerð.


Aðrir: Sigurður Halldórsson, framkvæmdastjóri Pure North.


Dagskrá:
1. Kynning framkvæmdastjóra Pure North.
2. Stjórn skiptir með sér verkum.
3. Önnur mál.


1. Kynning framkvæmdastjóra Pure North
Sigurður fór yfir markmið og stefnu Pure North og kynnti tvær meginlínur í rekstrinum –
plastendurvinnslu og ráðgjöf/hugbúnaðargerð.


2. Verkaskipting stjórnar
Sigurður Halldórsson vék af fundi.
Þar sem um fyrsta stjórnarfund frá aðalfundi að ræða fór fram kjör formanns og varaformanns. Enginn
gaf kost á sér til formanns annar en sitjandi formaður, Önundur Jónasson og var framboð hans
samþykkt. Ingþór Guðmundsson sat hjá við atkvæðagreiðslu. Svavar Grétarsson var einn í framboði til
varaformanns og var framboð hans samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.


3. Önnur mál.
Engin önnur mál voru tekin fyrir á fundinum.


Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum og honum slitið kl. 18:00.
Næsti fundur er áætlaður þriðjudaginn 10. júní 2025.


Fundargerð samþykkt með rafrænni undirritun. 

Hefur þú spurningu eða ábendingu varðandi efni vefsins?

Sendu okkur fyrirspurn