Fara í efni

Stjórnarfundir

577. fundur 10. febrúar 2026 kl. 16:30 - 17:20 Fundarsalur Kölku í Helguvík
Nefndarmenn
  • Önundur Jónasson
  • Ingþór Guðmundsson
  • Svavar Grétarsson
  • Eva Rún Barðadóttir
Starfsmenn
  • Halldór Eiríksson
Fundargerð ritaði: Eva Rún Barðadóttir

Dagskrá:
1. Skýrsla framkvæmdastjóra
2. Óendurskoðaður rekstrarreikningur 2025 (Halldór Eiríksson)
3. Staðan í byggingar undirbúningi
4. Önnur mál


1. Skýrsla framkvæmdastjóra
Farið var yfir skýrslu framkvæmdastjóra. Nýr starfsmaður í öryggismálum og var
nýttur starfsmannafundur í janúar til þess að rifja upp öryggismál. Meðalbrennslan
rétt undir meðallagi í janúar, finnskur verkfræðingur kominn til að greina hvar sé
hægt að ná í meiri orku og hvort þurfi að gera einhverjar breytingar, einnig góður
gangur í stafrænni vegferð og góðar bætingar þar framundan.


2. Óendurskoðaður rekstrarreikningur 2025
Halldór Eiríksson fór yfir óendurskoðaðan rekstrarreikning 2025. Uppgjörið sýndi
jákvæðar niðurstöður.


3. Staðan í byggingar undirbúningi
Það hafa borist 3 verðkannanir í stálgrindarhúsið en ekki er búið að bjóða út verkið.


4. Önnur mál
Engin önnur mál á dagskrá.


Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum og honum slitið kl. 17:20.


Næsti fundur er áætlaður þriðjudaginn 10. Mars 2026.


Fundargerð samþykkt með rafrænni undirritun. 

Hefur þú spurningu eða ábendingu varðandi efni vefsins?

Sendu okkur fyrirspurn