Stjórnarfundir
Fundur í stjórn Kölku sf. var haldinn þriðjudaginn 10. mars 2026, kl. 16:30 í fundarsal Kölku í
Helguvík.
Mætt: Önundur Jónasson, Ingþór Guðmundsson, Svavar Grétarsson, Eiður Ævarsson og Eva
Rún Barðadóttir sem ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. Skýrsla framkvæmdastjóra
2. Byggingarmál - staðan
3. Áherslur stjórnar fram að stjórnarskiptum og undirbúningur stjórnarskipta
4. Önnur mál
1. Skýrsla framkvæmdastjóra
Farið var yfir skýrslu framkvæmdastjóra. Farið var yfir brunavarnamál, búið að gera
samkomulag um kaup á kurlara. Yfirlit um grænt bókhald sem sýnir að minna magn er
að koma inn á gámaplön en áður. Gaf upplýsingar um stöðu Þjóðarbrennslunnar en
mikill undirbúningur er hjá bæði Kölku & Sorpu.
2. Byggingarmál - Staðan
Stefnt á útboð sé frágengið í byrjun maí og jarðvinna hefjist, áætluð verklok í
nóvember 2026.
3. Áherslur stjórnar fram að stjórnarskiptum og undirbúningur stjórnarskipta
Lítum til baka og vinnum samantekt hvað hefur verið unnið að síðustu 4 ár.
4. Önnur mál
Engin önnur mál á dagskrá.
Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum og honum slitið kl. 18.00.
Næsti fundur er áætlaður þriðjudaginn 14. apríl 2026.
Fundargerð samþykkt með rafrænni undirritun.