Stjórnarfundir
Fundur í stjórn Kölku sf. var haldinn þriðjudaginn 14. apríl 2026, kl. 16:30 í fundarsal Kölku í
Helguvík.
Mætt: Önundur Jónasson, Ingþór Guðmundsson, Svavar Grétarsson, Eiður Ævarsson, Steinþór
Þórðarson og Eva Rún Barðadóttir sem ritaði fundargerð. Kristján Ragnarsson endurskoðandi
var viðstaddur fyrsta lið.
Dagskrá:
1. Endurskoðaður ársreikningur Kölku til kynningar og áritunar. Endurskoðandi
boðaður f. þennan lið.
2. Skýrsla framkvæmdastjóra
3. Önnur mál
1. Endurskoðaður ársreikningur Kölku til kynningar og áritunar
Endurskoðandi kom og fór yfir ársreikning Kölku. Ársreikningurinn er í samræmi við
fjárhagsáætlun og umfram væntingar. Stjórnin ritar undir skýrsluna án athugasemda.
2. Skýrsla framkvæmdastjóra
Framkvæmdastjóri fór yfir öryggis og starfsmannamál, rekstur og viðhald
brennslunnar, endurútgefna tímalínu byggingarmála sem hefur dregist á langinn og
breytingar á grenndarstöðvum. Framkvæmdastjóri fór einnig yfir breytingar á
starfsmannahaldi sem gætu haft minniháttar áhrif á skipurit.
3. Önnur mál
Engin önnur mál á dagskrá.
Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum og honum slitið kl. 17:45
Næsti fundur er áætlaður þriðjudaginn 14. maí 2026.
Fundargerð samþykkt með rafrænni undirritun.