Fara í efni

Stjórnarfundir

580. fundur 12. maí 2026 kl. 16:30 - 18:00 Fundarsalur Park inn
Nefndarmenn
  • Önundur Jónasson
  • Ingþór Guðmundsson
  • Svavar Grétarsson
  • Eiður Ævarsson
  • Eva Rún Barðadóttir
Fundargerð ritaði: Eva Rún Barðadóttir fundarritari

Fundur í stjórn Kölku sf. var haldinn þriðjudaginn 12. Maí 2026, kl. 16:30 í fundarsal á Park
inn í Keflavík.


Mætt: Önundur Jónasson, Ingþór Guðmundsson, Svavar Grétarsson, Eiður Ævarsson og Eva
Rún Barðadóttir sem ritaði fundargerð.


Dagskrá:
1. Skýrsla framkvæmdastjóra
2. Baksýnisspegill stjórnar – vegferðin á kjörtímabilinu sem er að líða og að hluta á
þarsíðasta. Framtíðarpælingar í ljósi sögunnar.
3. Önnur mál.


1. Skýrsla framkvæmdastjóra
Farið var yfir skýrslu framkvæmdastjóra. Stutt yfirferð á öryggismálum,
starfsmannamálum, brennsluna í apríl, útboð í nýbygginguna, IFAT ráðstefnuna um
nýjar lausnir og vélar og Þjóðarbrennsluna og stöðu þess verkefnis.


2. Baksýnisspegill stjórnar
Núverandi stjórn hóf störf í ágúst 2022 og var farið aðeins í saumana á hvað hefur
gerst samkvæmt lögum síðan þá þ.m.t. þá voru grenndarstöðvar opnaðar 2021 og
fjögra flokka söfnun frá heimilum hófst 2024. Farið var yfir mönnun í Helguvík og séð
að starfsmannaveltan er sáralítil og fólk að koma aftur. Stuttlega kíkt á rekstrartölur
2018 - 2025. Tekin dæmi um ný eða aukin verkefni t.d. Móttaka á garðaúrgangi,
þjónusta við grenndarstöðvar og hert öryggismál og fræðsla. Mikill framgangur í
kerfismálum til dæmis með Vigtarkerfið sem hefur skilað af sér tímasparnaði hjá
starfsfólki og tekið allan biðtíma af gagnavinnslu. Miklar breytingar hafa verið gerðar
á aðstöðunni í Helguvík með góðri útkomu.


3. Önnur mál
Framkvæmdastjóri var með eitt annað mál á dagskrá.


Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum og honum slitið kl. 18.00.
Næsti fundur er verður boðaður með venjulegum fyrirvara.


Fundargerð samþykkt með rafrænni undirritun.

Hefur þú spurningu eða ábendingu varðandi efni vefsins?

Sendu okkur fyrirspurn